Mannauðsstefna
Iðan leggur áherslu á að ráða, efla og halda í hæft starfsfólk. Því til stuðnings er félagið með skilgreinda fræðslu-, jafnréttis- og geðheilsustefnu sem og áætlun gegn einelti og áreitni á vinnustað. Iðan hefur hlotið jafnlaunastaðfestingu og leggur áherslu á að fylgjast með og vinna að stöðugum umbótum á starfsumhverfinu. Í þeim tilgangi eru haldin regluleg starfsmannasamtöl sem og gerðar kannanir meðal starfsfólks.

Starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs í kennslusal hússins í Vatnagörðum 20. Á myndina vantar Helen Gray, leiðtoga alþjóðaverkefna, Sigurð Svavar Indriðason leiðtoga bílgreina, Sólveigu Pálsdóttur markaðsstjóra og Ara Thorlacius leiðtoga matreiðslu- og veitingagreina.
Mannauður 2024-2025
| Endurmenntun starfsfólks | 896,25 klst |
| Meðalaldur starfsfólks | 49 |
| Hlutfall starfsmannaveltu | 3,9 |
| Fjöldi starfsfólks/ársverk | 26,7 |
Í heildina á litið er ég ánægð/ur/t í starfi mínu
Könnunin var framkvæmd af Gallup, júní 2025. Svarhlutfall var 96%
Iðan fræðslusetur
Vatnagarðar 20
104 Reykjavík
KT. 551203 - 2980