Ársskýrsla Iðunnar fræðsluseturs

2024 - 2025

Lykiltölfræði

Aldrei hafa fleiri sótt námskeið hjá Iðunni fræðslusetri en á liðnu starfsári.

  • 488

    námskeið í boði

  • 4.858

    14%

    þátttakendur á námskeiðum

  • 2.432

    kenndar klukkustundir

  • 71

    fyrirtækjaheimsóknir

  • 20

    vefnámskeið

  • 797

    sveinsprófstakar

  • 15.516

    félagsfólk

  • 69

    ný námskeið

Ávarp framkvæmdastjóra

aNvNd55xUNkB1RUe__G8A7723-anlogo.jpg
Vilborg Helga Harðardóttir Framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs

Árið sem nú er að baki markar mitt fyrsta starfsár sem framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Það hefur verið bæði lærdómsríkt og gefandi að leiða starfsemi sem gegnir lykilhlutverki í starfsþróun félagsfólks um land allt og stuðlar að framþróun íslensks iðnaðar. Starfsemin er fjölbreytt, mannauðurinn mikill og samstarfið við hagaðila uppbyggilegt. 

Segja má að árið hafi í senn verið ár stöðutöku og stefnumótunar. Horft var til framtíðar og forgangsverkefni skilgreind. Lögð var áhersla á að skerpa á hlutverkum og skipulagi og styrkja tengslin við hagaðila í þeim tilgangi að efla fræðsluframboð og þjónustu í takt við þarfir félagsfólks og iðnaðarins. Fræðslustarfsemi Iðunnar var öflug á árinu og þátttakendur fleiri en nokkru sinni fyrr. Hátt í fimm þúsund sóttu námskeið, auk þeirra sem nýttu sér fræðslu í öðru formi, svo sem hlaðvörpum, viðburðum og með náms- og starfsmannaskiptum í Evrópu. Fræðslan er veitt með fjölbreyttum hætti víða um land, á bóklegum og verklegum námskeiðum, í stað-, fjar- og vefnámi sem og inní fyrirtækjum. Markmiðið er ætíð að mæta þörfum félagsfólks og fyrirtækja, styrkja þau í daglegu starfi og skapa þeim tækifæri til framtíðar.  Iðan sinnir einnig mikilvægu hlutverki fyrir yfirvöld með framkvæmd sveinsprófa í 28 löggiltum iðngreinum. Ásókn í iðnmenntun hefur aukist síðustu árin og er ánægjulegt að sjá þennan vaxandi áhuga, enda þörfin mikil og tækifærin fjölmörg fyrir fagfólk í iðnaði. Á árinu lagði Iðan sitt af mörkum til að efla ímynd og gildi iðngreina, meðal annars með stuðningi við Íslandsmót iðn- og verkgreina og norrænu nemakeppnina í matreiðslu- og framreiðslugreinum. Slíkar keppnir vekja athygli á fjölbreyttum og spennandi tækifærum og ýta undir metnað innan greina. Alþjóðlegt samstarf hefur einnig skipað mikilvægan sess í starfsemi Iðunnar. Með þátttöku í evrópskum og norrænum samstarfsverkefnum höfum við eflt tengslanet, tekið þátt í þróun nýrra aðferða og fengið innblástur sem styrkir kennslu í iðnaði og þjónustu okkar við félagsfólk. Framundan er spennandi starfsár. Við munum leggja áherslu á virkt samtal við félagsfólk og hagaðila, ábyrga nýtingu fjármuna og heilbrigt starfsumhverfi. Markmiðið er skýrt - að styrkja enn frekar stöðu Iðunnar sem leiðandi afls í símenntun og fræðslu í iðngreinum og tryggja félagsfólki aðgang að framúrskarandi þjónustu og þekkingu í takt við kröfur samtímans.

aOZXkZ5xUNkB1vXs_Undirskrift_VHH.png