Fara beint í efni

Alþjóðastarf

Alþjóðleg þróunarverkefni, samfélagsleg ábyrgð og samstarf um framþróun í iðnaði er mikilvægur hluti af starfsemi Iðunnar.

Alþjóðleg fræðsla og framþróun

Iðan fræðslusetur tekur virkan þátt í alþjóðlegu fræðslustarfi og framþróun þekkingar í löggiltum iðngreinum. Alþjóðlegt fræðslustarf Iðunnar byggir á stefnu sem leggur áherslu á umhverfi og ábyrgð, fjölbreytileika og inngildingu, stafræna umbreytingu og virkni í netverkum. 
Með þátttöku í fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum hefur Iðan eflt tengslanet, styrkt faglega þróun og aukið gæði náms og starfsþjálfunar. 

aOaD855xUNkB1wDK_2603.original-1.jpg

Sannvottun örnáms

Erasmus+ verkefnið MCEU snýst um að prófa nýja lausn ESB á sannvottun örnáms í ferðaþjónustu. Verkefnið er unnið í samstarfi við evrópska aðila og Samtök ferðaþjónustunnar og miðar að því að nýta bálkakeðjutækni til að tryggja öryggi og gildi viðurkenninga. Með þessu á að auðvelda hreyfanleika vinnuafls, styrkja stöðu starfsfólks og draga úr fölsunum.

EQAMOB

Annað Erasmus+ verkefni, EQAMOB, er leitt af Iðunni og miðar að því að innleiða evrópskt gæðamerki fyrir fyrirtæki sem taka þátt í náms- og starfsmannaskiptum.

Norræn samvinna um símenntun

Nordplus
Í mars 2025 tók Iðan þátt í Nordplus-verkefni þar sem fulltrúar frá Íslandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð komu saman í Reykjavík til að miðla reynslu og bera saman nálganir í símenntun. Áherslan var á sveigjanleg námsúrræði, örnám, raunfærnimat og stafrænar lausnir, með það markmið að þróa sameiginlega norræna nálgun á viðurkenningar örnáms yfir landamæri. 

Styrkir sem sótt var um

Ár Upphæð
2022 10.5 miljónir króna
2023 33 miljónir króna
2024 23 miljónir króna
2025 23 miljónir króna

Iðnnemar og nýsveinar

Grein Land Lengd (dagar) Fjöldi
Matreiðsla Noregur 70 2
Matreiðsla Danmörk 362 6
Gullsmíði Holland 98 1
Gullsmíði Danmörk 206 2
Húsgagnasmíði Frakkland 212 1
Múraraiðn Svíþjóð 17 1
Samtals 965 13

Leiðbeinendur, nefndir og starfsfólk

Grein Land Lengd (dagar) Fjöldi
Málmiðngreinar Finnland 6 1 
Bíliðngreinar Finnland 30 7 
Byggingagreinar Finnland 22 6 
Matvælagreinar Finnland 6 1 
Matvælagreinar Austurríki 16 2 
Sérfræðingar í fræðslumálum Eistland 16 4 
Samtals 96 21 

Móttaka iðnnema

Grein Land Lengd (dagar) Fjöldi 
Hársnyrtiiðn Finnland 58 1 
Bifvélavirkjun Þýskaland 30 1 
Vélvirkjun Austurrík 63 3 
Megatronic Austurríki 42 2 
Pípulagnir Austurríki 21 1 
Húsasmíði (roofer) Frakklandi 30 2 
Matreiðsla Norður Írland 182 13 
Matreiðsla Eistland 42 2 
Samtals 503 25